Færsluflokkur: Bloggar

3 helstu afrek ríkisstjórnarinnar

Á afrekaskrá ríkisstjórnarinnar eru óumdeilanlega 3 mál

1  Hreinsa til í seðlabankanum og koma sínum manni þar að 

Þetta atriði tókst og frá því að það kom til framkvæmda og þangað til að forseti Íslands synjaði lögum um icesave var gengi krónunar nánast í frjálsu falli.

2  Sækja um aðild að ESB í óþökk þjóðarinnar án þess að landsmenn hefðu nokkuð um það að segja og ausa peningum í það feigðarflan.

3  Gera 2 misheppnaða icesave samninga og segja fólki að ef þeir verði ekki samþykktir falli gengi krónunnar enn frekar. Í ljós kom þegar Ólafur Ragnar neitaði að samþykkja icesave samning að krónan tók heldur að braggast þvert á spár "sérfræðinga" ríkisstjórnarinnar


mbl.is Þreyttur á þessu kjaftæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkur gullkorn úr stjórnarsáttmála

"Þessi ríkisstjórn mun ekki velta vandanum yfir á þá verst settu í samfélaginu, né leggja byrðarnar á börnin okkar með því að skjóta vandanum á frest."

"Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé
markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku
atvinnulífi og betra samfélagi, samfélagi sem mun skipa sér í fremstu röð í verðmætasköpun,
velmegun, velferð og sönnum lífgæðum."

"skapa þjóðhagslegan stöðugleika að nýju og endurheimta traust á landið í alþjóðasamfélaginu."

"Hagstæð rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki þannig að störf verði varin og aðstæður skapaðar fyrir fjölgun þeirra á ný."

"Auka traust og trú á íslenskt efnahagslíf."

"Örva innlendar fjárfestingar í atvinnulífinu."

"stuðla að beinum erlendum fjárfestingum."

"Bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi"

"Settar verði siðareglur fyrir ríkisstjórn og stjórnsýsluna."

Það verður hver að meta fyrir sig hvernig þetta hefur tekist til


mbl.is Þolinmæðin er á þrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saga af manni með rör

Líkt finnst mér margt með störfum ríkisstjórnarinnar og sögu sem ég heyrði af manni sem vann á stóru verkstæði.  Maður þessi átti að hafa gert veðmál við vinnufélaga sína um það að hann gæti komist upp með það í heila viku að gera ekkert í vinnunni.  Þegar maðurinn byrjaði vinnuvikuna þá náði hann sér í stálrör og svo alltaf ef hann sá einhvern yfirboðara sinna þá setti hann rörið á öxlina og hvarf útaf verkstæðinu með það.  Maðurinn komst víst upp með það að bera þetta rör til og frá í heila viku og gera ekkert annað.  Sagan sagði reyndar að seinna hefði þetta seinna allt komist upp og maðurinn verið rekinn.  Þau eru nokkur rörin sem stjórnarliðar bera framm og aftur þessa daganna til þess að láta líta út fyrir það að þeir séu að gera eitthvað.  Þetta er eitt þeirra. 

 

Ég vil taka það framm að útaf fyrir sig þá er gott mál að afnema þessi lög sem hefur ekki verið beitt í 39ár.  En mér þykir forgangsröðun á verkefnum stjórnarinnar vera merkileg.                                                   

Gullkorn úr stjórnarsáttmálanum:

"Þessi ríkisstjórn mun ekki velta vandanum yfir á þá verst settu í samfélaginu, né leggja byrðarnar á börnin okkar með því að skjóta vandanum á frest"


mbl.is UVG fagnar frumvarpi Álfheiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skömm & Hugleysi

Það er ótrúlegt að þessir þingmenn skammist sín svo fyrir afstöðu sína í þjóðaratkvæðagreiðslunni að þeir þori ekki að upplýsa hvernig þeir kusu. 
mbl.is Fimm stjórnarþingmenn segja ekkert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það væri fróðlegt að vita

Hvaða hlutfall er í skilum af öðrum lánum en til einstaklinga.  Þegar nær daglega berast fréttir af félögum sem hafa fengið stjarnfræðilegar upphæðir lánaðar til að braska með, út á engar eða mjög haldlitlar tryggingar
mbl.is Lánin færð yfir á hálfvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur listi

Ég óska íbúum í Fjarðabyggð til hamingju með þennan glæsilega lista og hvet þá til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórnarkosningunum í vor
mbl.is Jens Garðar skipar fyrsta sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn slátra ekki kúnni sem mjólkar best

Þessi ríkisstjórn gerir ekkert sem JÁJ gæti mislíkað.  Flokkarnir sem nú eru í ríkisstjórn hafa barist fyrir því síðan 2004 að Jón Ásgeir geti átt megnið af fjölmiðlum á íslandi.  Ólíklegt verður að teljast að einhver breyting verði á því.  Þessi ríkisstjórn gerir ekkert sem JÁJ gæti mislíkað.
mbl.is Ekki tekið á eignarhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðalmálið vantar

Það vekur athygli mína að ekki minnast ungliðar VG á að snjallt væri að greiða þjóðaratkvæði um hvort halda eigi áfram ESB umsóknarferli.  http://www.vinstri.is/frettasafn/alyktanir/nr/852   En líklega hætta þau ekki á að styggja samspillinguna sína eftir að flokkarnir hafa drullað svona upp á bak í icesave málinu.
mbl.is Vilja þjóðaratkvæði um ýmis mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálaráðherra Hollands getur vel borgað húsnæðislánið mitt.

Jan Kees de Jager.  fjármálaráðherra Hollandsgetur vel borgað húsnæðislánið mitt. hann átti jafn mikinn þátt í að stofna til þess og ég í icesave reikningunum

Hann hefur alla burði til að standa undir skuldum mínum.

„Það eru engar umræður um hvort hann eigi að endurgreiða féð sagði Hreinn Sigurðsson


mbl.is Ísland getur vel borgað skuldina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilningur stjórnarliða

Stjórnarliðar hafa æpt á það að stjórnarandstaðan beygi sig undir vilja firringarstjórnarinnar síðan í júní og allt sáttatal hjá stjórninni hefur gengið útá að stjórnarandstaðan samþykki þeirra hugmyndir.  Þessi leið hefur skilað okkur hingað og nú er tími til kominn að ríkisstjórnin hætti firringunni og átti sig á að sátt næst ekki með því að stjórnarandstaðan (sem barist hefur fyrir almenning í landinu til að fá betri lausn í icesave málið sem stjórnin klúðraði svo eftirminnilega) sættist á leið ríkisstjórnarinnar.  Sátt næst aðeins ef ríkisstjórnin ákveður að vinna að góðri lausn á icesave með stjórnarandstöðunni, en ekki hraðri lausn upp á eigin spýtur.
mbl.is Hættum að etja flokkunum saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband