Fátt um svör hjá Svandísi

Eitthvað annað liðið er búið að hafa 40 á til að skilgreina hvað annað á að gera. En fátt um vitrænar hugmyndir.
mbl.is Styður frumvarpið en hefur ekki áhuga á álveri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundir og aðgerðaleysi

Mér datt í hug vísa eftir Geir í Eskihlíð þegar ég sá frétt um enn einn fund ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna.  Vísan er svona:

 

Illa bítur orðastálið

algengast er það:

Halda fundi, hugsa málið

en hafast ekki að.

 

 


mbl.is Fundur um skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðastríðið hafið fyrsta stig í sorgarferlinu AFNEITUN.

Þá er dauðastríð Helferðarstjórnar VG og samfylkingar hafið.  Sorgarferlið hjá þeim skötuhjúum virðist byrja á hefðbundinn hátt, fyrst fengu þau áfall þegar 8000 manns mættu á Austurvöll til að mótmæla ráða og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar Þessi frétt sýnir doðatilfinninguna og afneitunina hjá þeim  Steinka og Gránu.

 

Sorgarferli mism. stig

Áfall,doðatilfinning og afneitun

Reiði

Þunglyndi

Sátt

 

 


mbl.is Okkur hefur ekki mistekist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt skref í að koma hjólum atvinnulífsins af stað aftur

Það færi best á því að losna við þennan dragbít á íslensku atvinnulífi. Þarna snýst málið um lagatækni og getur seinkað því að störf skapist við framkvæmdir.
mbl.is Krefjast þess að forsætisráðherra beiti sér gegn Svandísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbrögð flugfélaga við fjárlagafrumvarpi "velferðarstjórnarinnar"

Viðbrögðin má glögglega sjá á þessum fréttum.

http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2010/10/07/aukin_umsvif_hja_icelandair/

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/10/08/flugfelag_islands_faerir_ut_kviarnar/ 

 


mbl.is „Fólk rekið úr landinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einnbeitt gegn atvinnu

Þetta er gott dæmi um atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.  Að reyna að koma í veg fyrir framkvæmdir með því að hengja sig á aukaatriði.
mbl.is Svandís áfrýjar dómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norræna velferðar skjaldborgar bullið og þvælan dugar ekki eitt og sér.

Almenningur er búinn að sjá að það þarf að koma atvinnulífinu af stað.   ekki bara að þvaðra um einhver óljós markmið um skjaldborg og velferð sem ekkert virðist vera á bakvið.  Skjaldborgin virðist fyrst og fremst vera um framlög til menningar og lista, ekki heyrist mikið um niðurskurð á listamannalaunum.
mbl.is Boðar stjórnarandstöðuna á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Girðing milli þings og þjóðar

Einusinni var talað um gjá milli þings og þjóðar nú er það girðing
mbl.is Girðing um Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingríma


Þessi skemmtilega Steingríma sem ég sá við Rauðanúp 

í sumar er að einu leiti skárri en ríkisstjórn VG og Samfylkingar.

Þó hún komi engu í verk þá  stendur hún ekki í vegi fyrir atvinnusköpun. 

steingrima.jpg


mbl.is Líta mótmælin öðrum augum nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilningur hjá Herði.

Aðsókn á tónleika Harðar hefur dregist saman af því að fólk telur að eina markmið Harðar hafi verið að koma vg í ríkisstjórn.Ástandið versnar og versnar liðsmenn vg berjast ötullega gegn nýsköpun í atvinnumálum og telja að besta leiðin út úr kreppuni sé að skattpína almenning. Fólkið sem stóð að búsáhaldabyltingunni svokölluðu sofnaði svo værum svefni (sem sér ekki fyrir endann á) þegar Horvæna Helferðarstjórnin var stofnuð.

Ein af kröfum sem heyrðust oft og hátt var að nýtt fólk kæmi að stjórn landsins, Niðurstaðan úr því var að afdankaðir pólitíkusar eins og Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson og Steingrímur Jóhann Sigfússon fengu valdamestu embætti stjórnarinnar.

Mikið var rætt um mikilvægi þess að taka upp persónukjör lítið hefur heyrst um það síðan vg og samfylking komust að kjötkötlunum.

Skjaldborgin um heimilin sem fólk í landinu trúði að væri um heimili almennings, reyndist aðeins vera um örfá heimili flokksgæðinga.

Einnig var hávær krafa um að slíta samstarfi við alþjóða gjaldeyrissjóðinn en Steingrímur umpólaðist í því þegar hann settist í stól fjármálaráðherra. 

Nokkur gullkorn tekin af síðu radda fólksins

"útrásarvíkingarnir leika lausum hala" þetta hefur lítið breyst eða hvað.

"Íslendingar verða að vekja þingheim af Þyrnirósarsvefni. Nauðsynlegt er að lýðræðiskjörnir fulltrúar fólksins hætti að hunsa kröfur mikils meirihluta þjóðarinnar"  Enn reynir Steingrímur að fá að borga icesave.

"Íslendingar búa við stjórnarkreppu í miðju ölduróti ofurskulda og ráðakeysi íslenskra stjórnvalda er löngu farið að vekja athygli og undrun umheimsins."   Það eina sem hefur breyst í þessu er að ráðaleysið er mest hjá vg.

"Við þurfum eldhuga sem þora, skilja og vilja vinna þjóðinni allt það gagn sem verða má, í stað freðinna fortíðarþursa sem stórskaða þjóðina."   

"Sama gerspillta kerfið þar sem auðmenn, ráðamenn og fjölmiðlafólk sukkabak við tjöldin eða jafnvel fyrir opnum tjöldum og leika fjárhættuspil með almannafé um leið og þauhalda okkur í þeirri blekkingu að allt sé þetta í okkar þágu"  Dæmi hver fyrir sig hvað hefur breyst í þessu.

 

"Þetta eru hinir skemmtilegu og spennandi tímar fyrir Sjálfstæðisflokkinn, að færa brunarústir efnahagshamfaranna aftur til auðkýfinganna"  Nú er þessi tilfærsla í boði vg og samfylkingar.


mbl.is Reiðin ráði ekki för
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband