10.1.2011 | 10:22
Stefna VG fyrir kosningar
Össur valdi að nota dýralíkingar um þremenningana og í flamhaldi af því þá datt mér í hug að það væri vel við hæfi að líkja krötum við nautgripi, vegna þess annars vegar að samfylkingin hefur verið eins og "naut í flagi" við að reyna að þröngva þjóðinni inn í ESB í andstöðu við mikinn meirihluta landsmanna. Og hinsvegar vegna nokkura þekktra orðtaka um greindarfar nautgripa.
Ég sé ekki betur en að þessir þremenningar séu einu þingmenn VG sem fara eftir þeirri stefnu sem flokkurinn boðaði fyrir síðustu þingkosningar af því tilefni datt mér þetta vísukorn í hug.
Í vinstri grænum verja þrjú
Vandlega stefnu flokksins
Hin 12 kjósa að hampa kú
Krata-spuna -rokksins
Bregðast við málflutningi Árna Þórs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Blessaður Hreinn.
Á þetta ekki að vera kokksins??? Samanber spunakokkurinn Skúli Helga.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 10.1.2011 kl. 11:32
Sæll Ómar. Hugmyndin var nú rokkur sá sem spinnur flesta spuna samfylkingarinnar. En það má nú líka segja að samfylkingin sé alltaf að kokka upp einhverja spuna til að halda umræðunni frá málunum sem helst þyrfti að einbeita sér að.
Hreinn Sigurðsson, 10.1.2011 kl. 17:06
Já, flott vísa hvort sem er.
En ég sá Skúla Helga fyrir mér, og hann er spunakokkur, spinnur upp fréttir og atburðarás.
En aðeins fyrr þá var Ámundi spunarokkur Jóns Baldvins.
Kveðja.
Ómar Geirsson, 10.1.2011 kl. 17:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.