20.3.2010 | 17:27
Ég er líka bjartsýnn
Ég er bjartsýnn á að framtíð frjálslynda flokksins sé svipuð og nútíð flokksins. Semsagt fámennt áhrifalaust apparat
Eru bjartsýn á framtíð flokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það mætti halda að þú værir hæst ánægður með núverandi stjórnmálaflokka á þingi. xF hefur þó skýra stefnu um ansi stór mál og má eiga það að þau hafa haldið sér fast á sínum kúrs....en þú sérð kannski þínum persónulega hag best borgið með því að mæra núverandi kvótakerfi. Ekki skal ég álasa þér það.
Haraldur Baldursson, 20.3.2010 kl. 18:17
Dálítið athygliverð yfirlýsing frá sjómanni!
Á fjölskylda þín eða kannski þú sjálfur einhverra hagsmuna að gæta?
Þá fer nú að verða skiljanleg þessi illspá.
"Falin er í illspá hverri
ósk um hrakför sýnu verri"
sagði Klettafjallaskáldið Stephan. G. á þeim tíma.
Afskaplega skarpur mannþekkjari Stephan. G. Stephansson.
Árni Gunnarsson, 20.3.2010 kl. 18:51
Já ég á þeirra hagsmuna að gæta að ég er á skipi sem hefur þokkalegan kvóta, allmennt þá hafa þeir sem vinna við sjávarútveg hagsmuni af því að halda sínu. Ég hef aldrei "átt" kvóta en byrjaði á sjó 1982 og hef verið starfandi sjómaður síðan að undanskildum námsárum mínum.
Hreinn Sigurðsson, 20.3.2010 kl. 21:59
Hreinn, þínum persónulegu högum óska ég einskins, nema því allra besta.
Þjóðinni allri hins vegar óska ég þess þó að aukinn jöfnuður í skiptingu auðlinda hennar nái fram. Ég vill sjá samfélag byggt meira á jöfnum tækifærum, ekki jafnaðarstefnu, heldur jafnari leikreglur.
Haraldur Baldursson, 20.3.2010 kl. 22:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.