14.3.2010 | 15:46
Ranghugmyndir um ESB farveg
Það eru miklar ranghugmyndir að ESB viðræður séu í eðlilegum farvegi. Það getur ekki talist eðlilegur farvegur að standa í viðræðum sem meirihluti þjóðarinnar er á móti. Það hefur fjarað undan stuðningi við þetta jafnt og þétt og athygli vekur að þrátt fyrir mikið blaður í VG og Samspillingunni um þjóðaratkvæðagreiðslur um ýmis mál þá hefur ekki heyrst hósti eða stuna um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn til ESB. UVG minntust t.d. ekki orði á það í nýlegri ályktun þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslur.
SUF fagnar því að ESB viðræður séu í eðlilegum farvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég vona að það hafi allir heyrt viðvörun þessa manns í ruv fréttunum í kvöld
http://www.ruv.is/frett/glapraedi-ad-thiggja-fleiri-ags-lan
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497931/2010/03/14/0/
Hann varar við fjárhagslegum ragnarökum eins og flestir husandi bloggarar eru búnir að gera í heilt ár!
Anna Ragnhildur, 14.3.2010 kl. 21:16
Fjárhagslegum ragnarökum ef við tökum meiri lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum! Hann veit hvað hann er að tala um og trúir að við kljúfum þetta betur án hjálpar.
Auðvitað getum við það ef við finnum fólk með stjórnunarhæfileika....
Anna Ragnhildur, 14.3.2010 kl. 21:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.