9.10.2013 | 23:38
ASÍ veldur sífellt vonbrigðum.
ASÍ eiga að vera hagsmunasamtök launafólks, en mest allt sem kemur frá ASÍ er eins og það komi beint frá samfylkingunni, Þetta veikir ASÍ eins og sjá má, nú þegar stéttarfélög eru hætt að treysta þessum krataklúbbi til að semja fyrir félagsmenn sína. Gylfi og félagar hafa verið duglegir að útbreiða fagnaðarerindi ESB aðlögunarinnar þátt fyrir að allar kannanir sýni að meirihluti íslendinga og þar með félagsmanna ASÍ hafi engann áhuga á að vera innlimaður í þann félagsskap. Helsta afrek ASÍ á síðasta kjörtímabili held ég að hafi verið að semja um innistæðulausa launahækkun sem strax var velt út í verðlagið. Sem var svo til þess að skuldir heimilanna hækkuðu enn meir, þó ekki væri á það bætandi. Enda kom það fram í könnun sem gerð var hjá mínu stéttarfélagi að meirihluti félagsmanna telur hag sínum betur borgið utan ASÍ.
Fjárlagafrumvarpið vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.