Hreinn Sigurðsson
Er yfirvélstjóri á frystitogaranum Barða NK 120
Helstu áhugamál eru: Ferðalög innan lands og utan, útivist, jeppar, vélhjól, veiði (skotveiði og sjóstangveiði), hjólreiðar, sjósund og að sjálfsögðu stjórnmál.
Ég hef unnið sem sjómaður og í störfum tengdum sjávarvegi frá 16 ára aldri.
Framhaldsskólagöngu mína byrjaði ég 1983 með því að fara í hússtjórnarskólann á Hallormsstað, prófaði 17 ára gamall að fara sem kokkur á togara,
Var í 4 ár háseti á dragnótabátnum Gullfaxa NK 6 með aflaklónni Guðmundi Þorleifssyni.
Var í stjórn Alþýðubandalagsins í Neskaupstað þegar ég var yngri og róttækari en er nú flokksbundinn Sjálfstæðismaður
Lærði vélsmíði á Vélaverkstæði Síldarvinnslunar í Neskaupstað.
Var formaður iðnnemasambands Íslands 1994-1995
Kláraði 4 stig Vélskóla íslands 1996
Lauk prófi í véliðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2007 (í fjarnámi)
Lauk prófi í rekstrariðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2008 (í fjarnámi)
Hef verið starfandi vélstjóri á Barða NK síðan 1996.